Tojiro grænmentishnífur 130mm – F562
Um Paring hnífa:
Paring hnífar henta best í smáverkin í eldhúsinu, t.d. að skræla grænmeti, fínsnyrtingu á kjöti eða fisk og að skera grænmeti og ávexti í form.
Paring hnífar eru stuttir með beinu blaði. Bæði egghlið og bakki blaðsins eru heldur bein. Bakkinn tekur örlitla sveigju í enda blaðsins og mætast bakki og egghlið í hvössu horni. Paring hnífar eru oftast ekki mikið lengri en 120 mm, en þessi er örlítið lengri en það. Handfangið og þunna blaðið gera hnífinn mjög léttan, og vegur það upp á móti lengd hans.
Blað og handfang:
Blaðið er 130 mm langt úr þremur lögum af stáli. Innst er bitlagið úr VG10 stáli sem heldur biti lengi og vel. Bitlagið er svo klædd með sitthvoru laginu af 13-Chrome stáli sem stenst álag af mikilli notkun og er vel ryðvarið. Þriggja laga stál hnífar henta áhugafólki einkar vel í eldhúsið.
Handfangið er úr magnólíuviði með kraga úr plastefni. Handfanginu er hægt að skipta út.
Viðhald:
Gæða hnífa á aldrei að setja í uppþvottavél. Heitt vatn á að duga og sápa ef þörf er á. Best að nota mjúkan svamp.
Gott er að brýna hnífinn reglulega, þó aldrei minna en einu sinni á ári. Hægt er að nota hefðbundinn borðbrýni, t.d. keramík brýninn frá Tojiro (F-641). Best er þó að brýna á blautum brýningasteini, eða láta fagfólk um brýninguna.
Best er að geyma hnífinn þar sem blaðið er verndað. T.d. á hnífasegli á vegg. Þegar gengið er frá blautum hníf er lang best að strjúka yfir hann með þurrum klút eða pappír til að ná mestri bleytu af honum. Ef blautur hnífur fer upp á vegghengdan hnífasegul er gott að tryggja að vatn leki ekki ofan í viðar handfangið. Það eykur endingu blaðsins og handfangsins.