Svartur „Paring“ Damascus hnífur – 130 mm – FD1592
Paring hnífar henta best í smáverkin í eldhúsinu, t.d. að skræla grænmeti, fínsnyrtingu á kjöti eða fisk og að skera grænmeti og ávexti í form. Blaðið er úr þriggja laga stáli, sem er oxað til að fanga svarta litinn og auka vörn gegn tæringu.
Handfangið er mótað í D-laga grip og er úr brenndum kastaníaviði
Um Paring hnífa:
Paring hnífar henta best í smáverkin í eldhúsinu, t.d. að skræla grænmeti, fínsnyrtingu á kjöti eða fisk og að skera grænmeti og ávexti í form.
Paring hnífar eru stuttir með beinu blaði. Bæði egghlið og bakki blaðsins eru heldur bein. Bakkinn tekur örlitla sveigju í enda blaðsins og mætast bakki og egghlið í hvössu horni. Paring hnífar eru oftast ekki mikið lengri en 120 mm, en þessi er örlítið lengri en það. Handfangið og þunna blaðið gera hnífinn mjög léttan, og vegur það upp á móti lengd hans.
Blað og handfang:
Blaðið er 130 mm langt úr 37 laga Damascus VG-10 stáli sem er vel ryðvarið og fullkomið fyrir bæði áhugafólk og lengra komna í eldhúsið. Lögin eru á víxl kolefnisrík og snauð. Kolefnisrík miðjulögin halda brýningu betur, og kolefnissnauðari ytri lögin veita góða vörn gegn tæringu og hnjaski.
Blaðið er svo oxað sem gefur því einkennandi svarta litinn. Oxunin er ekki bara falleg, heldur eykur það ryðvörn blaðsins án þess að það komi niður á biteiginleikum þess.
Handfangið er úr brenndum kastaníaviði og kraginn úr plastefni.
Viðhald:
Gæða hnífa á aldrei að setja í uppþvottavél. Heitt vatn á að duga og sápa ef þörf er á. Best að nota mjúkan svamp. Gott er að brýna hnífinn reglulega, þó aldrei minna en einu sinni á ári. Hægt er að nota hefðbundinn borðbrýni, t.d. keramík brýninn frá Tojiro (F-641). Best er þó að brýna á blautum brýningasteini, eða láta fagfólk um brýninguna.
Best er að geyma hnífinn þar sem blaðið er verndað. T.d. á hnífasegli á vegg. Þegar gengið er frá blautum hníf er lang best að strjúka yfir hann með þurrum klút eða pappír til að ná mestri bleytu af honum. Ef blautur hnífur fer upp á vegghengdan hnífasegul er gott að tryggja að vatn leki ekki ofan í viðar handfangið. Það eykur endingu blaðsins og handfangsins.