Mýkjandi og nærandi SPA of ICELAND handáburður. Nærir húðina og gefur henni góðan raka. Kemur í veg fyrir þurrar hendur. Inniheldur hafþyrnisþykkni og hnetusmjör (shea butter.) Mildur ilmur af Íslenskum mosa og timjan.
Spa of Iceland vörurnar eru þróaðar af íslenskum frumkvöðlum þeim Haraldi Jóhannssyni og Fjólu Guðrúnu Friðriksdóttur. þau hafa meðal annars rekið innflutningsfyrirtæki sitt Forval síðan1976 ásamt því að framleiða hárvörur undir eigin vörumerkinu frá 2001.
Haraldur og FJóla deila ástríðu sinni að búa til hágæða snyrtivörur með áhrifum frá íslensku náttúrunni, þar sem vel er gætt að umhverfinu með því að framleiða vörurnar hreinar og umhverfisvænar. Vörulínan Spa of Iceland er innblásin af hreinu vatni, fersku lofti og jarðvarmavirkjunum sem liggja í íslensku umhverfi. Spa of Iceland er VEGAN vottað og inniheldur alltaf 95% náttúruleg innihaldsefni.