Jeu de Dames et Backammon – tvö spil í fallega handmáluðum kassa frá Le Monde Sauvage
Allar vörur frá Le Monde Sauvage eru handgerðar og því getur verið munur á milli sömu vöru. Við trúum því að það gefi hlutum líf og geri lífið örlítið skemmtilegra að lagður sé tími og tilfinningar við framleiðslu hluta. Við erum með fleiri vörur frá Le Monde Sauvage t.d. púða og rúmteppi sem sjá má inná heimasíðu okkar: https://seimei.is/
Kassanum fallega utan um Jeu de Dames et Backammon er hægt að loka og er hann fallegur sem skrautmunur á borði
Frá 1970 hefur Franska fyriritækið Le Monde Sauvage, leytast við að framleiða vandaðar vörur sem ná yfir landamæri. Sem passa alls staðar, handgerðar vörur sem sýna oft ófullkomleikann í handgerðum vörum. Stíll Le Monde Sauvage er mjög auðþekkjanlegur.
Hönnuður og eigandi Beatrix Laval hefur heillast af Asíu frá sinni fyrstu ferð þangað og ber yfirbragð varanna það með sér. Efnið er oftast silki, litavalið sterkt og þorið. Þetta litaval sem sameinar á einhvern hátt lifandi og litríkan stíl Frakklands og Asíu. Vörur frá Le Monde Sauvage má sjá nánar hér: https://www.lemondesauvage.com/