Hilke Collection er sænskt vörumerki sem framleiðir klassískar en jafnframt nútímalegar vörur fyrir heimilið. Giovanna Hilke stofnaði fyrirtækið 2015 í Svíþjóð, hún er menntuð véla verkfræðingur en hefur alltaf haft áhuga á innanhús hönnun. Hún byrjaði á því að hanna kertastjaka en smá saman hefur úrvalið aukist. Hilke Collection er nú selt í betri verslunum í Svíþjóð og í fjölda annara landa.
Hilke Collection leitast við að nota hágæða hráefni og hönnun sem endist og stenst tímans tönn, með umhverfið og sjálfbærni í huga.