Berkley borðstofuborð – stærð 100cm x 240cm. Tíu manna borð úr massívri eik með fallgeri rústík áferð á lit sem minnir á kaffi. Fæturnir eru stórir eða 20cm x 20cm á þykkt.
Sjá má fleiri borðstofuborð hjá Seimei hér
Artwood var stofnað árið 1969, fyrirtækið er fyrst og fremst heildsala fyrir smávöruverslanir á norðurlöndum. Fyrir utan að vera með eigin vörulínu er fyrirtækið einnig dreifingaraðili fyrir valda hönnuði. Seimei er með valda hluti frá Artwood í versluninni en þar liggur einnig bæklingur frá Artwood og hægt er að sérpanta fjöldan allan af húsgögnum og smávöru. Vörulínan er mjög breið og einkar vönduð og glæsileg.