Fjóla baðsalt frá Spa of Iceland.
SPA of ICELAND Relaxing Bath Salt inniheldur hreint íslenskt sjávarsalt sem er einstaklega ríkt af kalsíum, magnesíum, kalíum og natríum. Söltin draga úr bólgum, mýkja húðina og jafna áferð hennar. Blanda af söltum og náttúrulegum ilmolíum af amber og musk hafa slakandi áhrif á líkama og sál.
Spa of Iceland vörurnar eru þróaðar af íslenskum frumkvöðlum. Þeim Haraldi Jóhannssyni og Fjólu Guðrúnu Friðriksdóttur. þau hafa meðal annars rekið innflutningsfyrirtæki sitt Forval síðan1976 ásamt því að framleiða hárvörur undir eigin vörumerki frá 2001.
Haraldur og Fjóla deila ástríðu sinni að búa til hágæða snyrtivörur með áhrifum frá íslensku náttúrunni, þar sem vel er gætt að umhverfinu með því að framleiða vörurnar hreinar og umhverfisvænar. Vörulínan Spa of Iceland er innblásin af hreinu vatni, fersku lofti og jarðvarmavirkjunum sem liggja í íslensku umhverfi. Spa of Iceland er VEGAN vottað og inniheldur alltaf 95% náttúruleg innihaldsefni.