Zeus sófi frá NDesign er ný taka á hinn klassíska Chesterfield sófa. Lagið á sófanum er nútímalegra en Chesterfieldinn en bólstrunin gefur honum klassískt yfirbragð.
Ndesign er fjölskyldufyrirtæki sem er með verslanir í um 70 löndum.
Fyrirtækið framleiðir mikið úrval af húsögnum og erum við aðeins með lítið brot af því í versluninni hjá okkur. Húsgögnin er hægt að panta í fjölda áklæða og lita og alla sófa er hægt að fá í nokkrum lengdum.