Kvöld – ilmkerti frá Spa of Iceland.
Sjá má fleiri vörur frá Spa of Iceland hér.
Ilmkertið er Vegan og handgert úr kókoshnetu- og repjuvaxi með blýlausum þræði. Svartur kertaliturinn er umhverfisvænn og ESB vottaður. Kertið er 220 gr og hefur brennslutíma allt að 40 klst. Eik og sedrusviðurinn gefur mjúkan og seiðandi ilm. Öldruð eik blandast saman við þurran sedrusviðinn ásamt djúpum ilm af amber og mosa, kashmere musk og vanillu. Þessi ilmur fullkomnar notalegt Kvöld.
Spa of Iceland vörurnar eru þróaðar af íslenskum frumkvöðlum þeim Haraldi Jóhannssyni og Fjólu Guðrúnu Friðriksdóttur. þau hafa meðal annars rekið innflutningsfyrirtæki sitt Forval síðan1976 ásamt því að framleiða hárvörur undir eigin vörumerkinu frá 2001.
Haraldur og FJóla deila ástríðu sinni að búa til hágæða snyrtivörur með áhrifum frá íslensku náttúrunni, þar sem vel er gætt að umhverfinu með því að framleiða vörurnar hreinar og umhverfisvænar. Vörulínan Spa of Iceland er innblásin af hreinu vatni, fersku lofti og jarðvarmavirkjunum sem liggja í íslensku umhverfi. Spa of Iceland er VEGAN vottað og inniheldur alltaf 95% náttúruleg innihaldsefni.