Kansara vasi – M frá Vical home. Kansa vasinn er handgerður úr beige lituðum leir. Hver vasi er einstakur og enginn er eins þar sem um handgerðan hlut er að ræða.
Sjá má fleiri vasa hjá Seimei hér.
Vical home var stofnað árið 1949 og rætur sínar í handverki og hefðbundum gildum. Fyrirtækið var fyrst og fremst í víði. Unnu með fléttaðan víði bæði í húsgögnum og körfum. Þaðan hefur Vical þróast í framleiðslu og innfluting á húsgögnum og smávöru.
Jörðin okkar og umhverfið er þeim hugleikið og hefur þróunin verið að sjálfbærni. 50% af öllu sem er framleitt fyrir Vical er unnið úr endurunnum við úr húsum og húsgögnum. Með handverkskunnáttu er gömlum hlutum gefið annað líf.
Í stöðugri leit að innblæstri hefur starfsfólk Vical leitað í framandi menningarheima og haft fegurð aldursins að leiðarljósi. Þau finna fallega hluti í framandi löndum og gefa þeim nýtt líf sem skrautmuni og nýtanleg húsgögn. Þessir hlutir gefa hverju heimili sérstöðu.