GLÍMA 75 AUR – Íþróttafrímerki 40x50cm
Þann 9. ágúst, 1955 gaf póststjórnin í fyrsta skipti út tvö almenn frímerki með myndum úr þeim greinum sem fylgt hafa íþróttalífi Íslendinga frá landnámsöld, glímu og sundi. Á frímerkin er letrað: GÓÐ ÍÞRÓTT GULLI BETRI. Verðgildi frímerkjanna voru: 75 aur. glíma og 1,25 kr. sund.
Frímerki hannað og teiknað af Stefáni Jónssyni, arkitekt. Verkið er prentað á 40x50cm hágæða off-white 220 gr. pappír.
Sjá má fleiri plaköt hjá Seimei hér.