ALÞINGISHÚSIÐ 25 KR – Alþingishúsið í Reykjavík – 30x40cm
Þann 1. apríl 1952 kom út almennt frímerki með mynd af Alþingishúsinu í Reykjavík. Verðgildi þessa frímerkis voru 25 krónur. Var það langhæsta verðgildi, sem póststjórnin hafði gefið út til þessa. Var um þetta leyti orðin þörf fyrir svo hátt verðgildi á ýmsar verðsendingar og eins stærri bögglasendingar. Alþingishúsið var reist á árunum 1880-1881 á lóð við Kirkjustræti og vestan við Dómkirkjuna í Reykjavík. Uppdrátt hússins gerði danskur arkitekt, F. Meldahl. Frímerki hannað og teiknað af Stefáni Jónssyni, arkitekt. Verkið er prentað á 40x50cm hágæða off-white 220 gr. pappír.
Sjá má fleiri plaköt hjá Seimei hér.