Ægishjálmur galdrarún – kopar
Rúnirnar eru framleiddar af Tyr Art Factory. Fyrirtækið var stofnað í Reykjavík árið 2005 af listamanninum Tý Þórarinssyni. Týr lærði kvikmyndagerð í Cape town Film and Television School þaðan sem hann útskrifaðist árið 1989. Hann hefur starfað sem kvikmyndagerðarmaður, grafískur hönnuður og ljósmyndari.
Ægishjálmur er gamall íslenskur galdrastafur. Ægishjálmurinn er öflugur varnarstafur, bæði gegn öllu illu og einnig örugg vörn gegn reiði og yfirgangi höfðingja.